Myndasagan- Eineltið
Myndasagan sem hér verður sýnd er byggð á eineltishring Olweusaráætunarinnar. Hringurinn sýnir viðbragðsmynstur í eineltisaðstæðum og er því grunnurinn að sögusviði myndasögunnar. Eineltishringurinn er þessi:
1. Þolandi
2. Gerandi – á sjálfur frumkvæði að eineltinu og tekur þátt
3. Meðhlaupari/handlangari – Er virkur þátttakandi en á ekki frumkvæði
4. Stuðningsaðili/óvirkur gerandi – Styður eineltið en er ekki virkur þátttakandi
5. Óvirkur stuðningsaðili/hugsanlegur gerandi – Er samþykkur eineltinu en styður það ekki sýnilega
6. Hlutlaus áhorfandi – Sér hvað gerist en skiptir sér ekki af
7. Hugsanlegur verndari – Er á móti eineltinu og finnst hún/hann ætti að hjálpa en gerir það ekki.
8. Verndari – Er á móti eineltinu og hjálpar eða reynir að hjálpa þolanda (Olweusarverkefnið gegn einelti. E.d.)
Í myndasögunni koma allir þessir þættir fram. Þolandi sögunnar heitir Pleimó og gerandinn fékk nafnið Baldur. Myndasagan heitir Eineltið
Ég notaði playmo kalla til að túlka eineltið. Þegar ég lagði af stað í myndatökuna ætlaði ég mér að vinna með myndirnar og klippa kallana út úr bakgrunninum. Ég lagði rautt blað á gólfið og á vegginn fyrir aftan en þegar nýttur er skær litur sem sker sig úr forgrunninum er þægilegra að klippa myndirnar út. Þegar ég var búin að taka allar myndirnar og skoðaði þær í tölvunni fannst mér ég ekki þufa að klippa þær út heldur fannst mér koma vel út að hafa bakgrunninn rauðan. Myndasagna var unnin í forritinu Comic Life 2

Hér má nálgast myndasöguna á pdf formi
myndasaga.pdf | |
File Size: | 675 kb |
File Type: |
Að lokum
Ég held að þetta verkefni gæti komið vel út væri það útfært í kennslu fyrir grunnskólabörn. Ég tel að hægt væri að fá nemendur til að legga dýpri skilning í Eineltishringinn ef þeir fá tækifæri til að vinna með hann og sú leið sem ég fór væri ein leið til þess. Í mörgum skólum hangir veggspjaldið um eineltishringinn uppi og því ættu flestir nemendur að þekkja hann. Ef nemendur fengju tækifæri til að vinna með hann væri hægt að efla umræðuna um alvarleika málsins enn frekar. Ég sé tækifæri til þess að samþætti lífsleikni og upplýsingatækni í þessum efnum.
Heimildir
Olweusarverkefnið gegn einelti. E.d. Upplagt til að vinna með. Sótt 15. mars 2013 af http://olweus.is/frettirII.cfm?i=78