Myndvinnsluforrit
Allar myndirnar voru unnar í myndvinnsluforritinu Corel PaintShop Pro X5. Myndir 1 og 2 voru unnar eftir ákveðnum fyrirmælum, en frjálst val var á vinnslu með myndir 3 og 4
Mynd 1
Unnið var með mynd sem tekin var á fallegum haustdegi í Grímsnesi árið 2009 af næst yngsta syni mínum honum Frey.
Verklag: Ég fór eftir leiðbeiningum sem finna má með því að smella hér. Leiðbeiningarnar eru ýtarlegar og auðvelt að fylgja þeim til þess að leika ferlið eftir.
Myndin var gerð svart-hvít en ullarpeysan og berið sem hann tíndi héldu sínum litum. Hægra megin er upprunaleg mynd til samanburðar

Mynd 2
Settar voru saman tvær mjög ólíkar myndir. Ég notaði mynd sem ég tók á fallegum júní degi af næst elsta syni mínum honum Eiði Helga. Á myndinni er hann í þjóðhátíðarskapi í garðinum heima á Selfossi. Mér fannst kjörið að skella honum inn í mynd sem var tekin á framandi slóðum og fór því á vefslóðina http://www.flickr.com/creativecommons/ til þess að finna mynd en þar er að finna mikið af myndum sem leyfilegt er að afrita og vinna með.
Verklag: Ég byrjaði á því að eyða myndhlutunum allt í kringum strákinn til þess notaði ég bæði töfrastafinn og pensilinn. Það vann ég eftir leiðbeiningum sem finna má með því að smella hér. Sú vinna gékk hinsvegar ekki nægilega vel því þegar ég ætlaði að velja strákinn út úr myndinni þá var ekki hægt að greina á milli hvíta litsins og hársins á stráknum þó svo á hafi valið tolerance = 0.
Ég las mér til og nýtta aðra tækni við að ná stráknum út úr myndinni. Það gerði með eftirfarandi hætti: Ég opnaði aftur upprunalegu myndina, bjó til nýtt lag (layer) og litaði það grænt og hafði það með opacity 30% (sem þýðir að það var 70% gagnsætt). Svo strokaði ég strákinn út úr græna litnum, á þann hátt gat ég notað töfrasprotann til að velja strákinn. Ég afritaði hann inn á hina myndina minnkaði strákinn dálítið til þess að hann væri í réttum hlutföllum miðað við annað á myndinni sem ég vildi setja hann inná. Því næst speglaði ég myndina af stráknum því sólin skein á vinstri hlið hans á upprunalegu myndinni en sólargeislarnir komu hægra megin inná nýju myndinni. Að því loknu klippti ég út skiltið sem strákurinn virðist standa á bak við og setti það í nýtt lag og kom því síðan fyrir, fyrir framan strákinn í þeim tilgangi að láta strákinn passa betur inn í aðstæður nýju myndarinnar. Til vinstri má sjá nýju myndina og ef vel er að gáð sést sonur minn vera þátttakandi í mótmælum framarlega á myndinni með íslenska fánann. Upprunalega myndin af Eiði Helga er sú til hægri og fyrir neðan er upprunalega myndin sem honum var skeytt inn á.

Mynd 3 (frjáls aðferð)
Ég vann með mynd af elsta syni mínum honum Hlyni.
Verklag: Ég byrjaði á því að skera (crop) myndina til og gera hana að brjóstmynd, síðan afritaði ég hana í nýtt lag. Því næst stækkaði ég strigann (canvas) í tvöfalda hæð og speglaði nýja lagið (image og flip verticaly). Ég valdi svo neðri helming myndarinnar bjó til nýtt lag og fyllti neðri helminginn með hvítum lit og setti hann með opacity 10 % til þess að fá ljósari áferð á spegilmyndina. Á speglaða lagið valdi ég að gera ripple effect með því kom ég hreyfingu á neðri hluta myndarinnar. Að lokum croppaði ég utan af henni til að losna við bjögun sem kom á jaðar myndarinnar þegar ég valdi ripple. Til vinstri má sjá afraksturinn en til hægri er upprunaleg mynd.

Mynd 4 (frjáls aðferð)
Að lokum vann ég með mynd af yngsta syni mínum honum Björgvini Gunnari.
Verklag: Ég byrjaði á því að afrita bakgrunnslagið svo notaði ég Black pencil effect með oppacity 30% og detail 100 á nýja lagið (lag 1) Því næst notaði ég black pencil effect með oppacity 100% og detail 100 á bakgrunnslagið. Að lokum valdi ég svo lag 1 og strokaði út allt nema barnið. Vinstra megin hér að neðan má sjá útkomuna en til hægri er upprunaleg mynd.