Vefsíðukynningar
Khan Academy
Khan Academy er frír kennsluvefur með mörg þúsund kennslumyndböndum, gagnvirkum æfingum og prófum auk verkfæra til kennslu ásamt fjölmörgu öðru. Kennsluvefurinn inniheldur kennslumyndbönd fyrir yngstu nemendur grunnskóla allt til háskólanema sem gerir flóru fyrirlestra og æfinga afar fjölbreytta allt frá einföldustu samlagningu til flóknustu eðlisvísinda og allt þar á milli. Khan Academy vefurinn er auðlind upplýsinga og kennslumyndbanda ásamt því að vera gagnvirk og lifandi kennslustofa með fjölmörgum tækjum fyrir kennara, nemendur og foreldra.
Zimmet Twins
Zimmer Twins vefsíðan gengur út á að búa til teiknimyndir. Ekki þarf að hala niður forriti til þess að búa til teiknimynd heldur er unnið á síðunni. Umsjónarmenn síðunnar nota síur til þess að tryggja öryggi notenda hennar. Við teljum síðuna því henta vel innan veggja grunnskóla því hún er sérstaklega sniðin að ungum netnotendum.
Heimurinn minn
Heimurinn minn er gagnvirkur fræðslu og kennsluvefur um umhverfismál fyrir nemendur í grunnskóla. Nýtist þessi vefur afar vel til kennslu í náttúrufærði þar sem sú grein heitir nú „Náttúrufræði og umhverfismennt“ skv. Aðalnámskrá grunnskóla 2007. Er þeirri grein því ætlað að fjalla um fjölmargt sem tengist umhverfismennt og umhverfismálum og er efni þessa vefs vel til þess fallinn. Smellið á hlekk til að skoða vefinn.